Þér líður eins og þú hugsar
Brjóstagjöf er ekki einungis líkamleg geta til að mjólka barni hún snýst einnig um hugarfar. Því er ávallt mikilvægt að móðir trúi á sjálfa sig og leggi neikvæðar hugsanir til hliðar. Móðir sem hugsar: ég get ekki mjólkað nægilega mikið um leið og hún leggur barnið á brjóst er líklegri til að gefast upp en móðirin sem sest niður og ætlar að mjólka barni sínu er líkleg til árangurs. Það má til dæmis reyna að hugsa um allt það sem flæðir og streymir, svo sem Gullfoss og Geysi. Öflug vatnsföll og jákvæð hugsun kallar fram í huganum losunarviðbragðið.
Neikvætt sjálfstal virkar ekki ef auka á mjólkurmyndun. Því er mun heillavænna að nota jákvætt sjálfstal og byggja sig upp með því að hafa trú á sjálfa sig. Jákvætt sjálfstal kemur þér yfir hindranir og einnig verður þú viljugri í að takast á við verkefni þín. Æfðu þig í að tala jákvætt við sjálfa þig um að þú ætlir, viljir og getir mjólkað.
Reyndu að vera innan um fólk sem byggir þig upp og hvetur þig áfram svo þú náir markmiðum þínum sem þú settir þér eflaust á meðgöngu að ætla að gera það besta fyrir barnið þitt og hafa það á brjósti. Sjálfstal lagar auðvitað ekki ef líkamlegar orsakir liggja að baki því að móðir mjólki ekki eða að mjólkurmyndun hafi ekki verið komið af stað fljótlega eftir fæðingu barns. Eða í þeim tilfellum þegar líkamlegar orsakir hjá barni eru valdur að því að mjólkurframleiðsla móður viðhelst ekki. En umfram allt vertu jákvæð og hafðu trú á getu þinni þú ert komin svo langt og búin að ganga í gegnum meðgöngu og nú tekur brjóstagjöfin við. Þú ert ekki ein í heiminum það eru margar mæður að ganga í gegnum það sama og þú. Reyndu að slaka á og gera gott úr þínum aðstæðum hvort sem þú þarf að sinna einu barni eða fleirum. Það má í flestum tilfellum ná mjög góðum árangri með jákvæðu hugarfari.
Heimildir
Seligman, M. E. P. (2002). Authentic Happiness. Using the New Positive Psychology to Relize Your Potential for Lasting Fulfillment. New York, Free press.
Seligman, M. E. P. (2006). Learned Optimism. How to Change your Mind and your Life With a New Preface. New York, Vintage Books.
Saga móður:
Það sögðu allir við mig að hann væri svangur hann væri svo stór því yrði hann að fá meira. Ég stressaðist upp og var svo upptekin af því að ég hefði ekki nóg fyrir hann, leið alveg hræðilega. En hann var svona stór vegna þess að hann fékk nóg, ég bara sá það ekki þá. Það reyndist mér vel að hugsa um vatnsföll og allt sem rennur þegar ég gaf brjóstið. Fann hreinlega mjólkina streyma fram. Eitt af því sem ég veit núna en vissi ekki þá var að hann grét af ofeldi en ekki svengd. Vildi sjúga brjóstið en um leið og streymið kom ýtti hann sér frá því. Ekki skorti hinar ýmsu ráðleggingar sem ég ýmist prufaði eða hafnaði strax en ein reyndist mér vel. Það var að láta hann taka sama brjóstið í 4-6 tíma og skipta þá yfir. Þá fékk hann feitu mjólkina sem róaði magann og hann fékk að sjúga að vild. Svona er að vera ung og óreynd mamma en allt gekk mun betur með næsta barn.
Saga móður:
Það sögðu allar bækur að ég ætti að koma mér vel fyrir í stól og gefa brjóst en þar sem ég var með annað 2 ára barn hafði ég ekki tækifæri til þess. Heldur fékk ég mér burðarpoka sem ég gat auðveldlega gefið yngra barninu brjóst í. Þannig gat ég sinnt eldra barninu og falið það yngra í pokanum þannig að truflun frá eldra barninu hindraði mig ekki. Ég sat á gólfinu og kubbaði á meðan ég gaf brjóst.
Háskólinn í Reykjavík, Reykjavík University, 2010.
 |