brjostagjof.is
vefur um brjóstagjöf
Upphafs síðaStuðningur við foreldraBrjóstagjöf fullburða barnaSérstök brjóstagjöfBrjóstagjöf fyrirburaÝmislegt tengt brjóstagjöfFyrir fagfólk um brjóstagjöfÞær sem standa að brjostagjof.isÁhugavert efni um brjóstagjöfÞroski barna
Veftré vefsíðunnar
Heilbrigðisyfirvöld og brjóstagjöf
Gæði vefsíðunnar brjóstagjöf.is
Andleg heilsa foreldra
Svínaflensa og brjóstagjöf
Gæði vefsíðunnar brjóstagjöf.is

Efnisyfirlit

  • Traustur ábyrgðaraðili

  • Óhlutdræg umfjöllun

  • Nýjar upplýsingar

 Brjóstabarn  Mæður og börn  hópstarf

Traustur ábyrgðaraðili

  • Hver er höfundur efnis? Er hægt að hafa samband við hann - er t.d. gefið upp tölvupóstfang? já, í öllum tilfellum.

  • Hefur höfundur sérþekkingu á því sviði sem fjallað er um? Já, allir 10-23 ára reynslu.

  • Athugið að gera mun á ritstjóra vefsíðu og höfundi efnis. Arnheiður Sigurðardóttir höfundur efnis á síðunni, vinnur efnið sem verkefni við Háskólann í Reykjavík. Ritstjóri Hulda Sigurlína Þórðardóttir er einnig menntuð á sviði brjóstagjafar og stundar framhaldsnám við Háskóla Íslands í ljósmóðurfræðum.

  • Hver gefur síðuna út? Einstaklingur, háskóli, fagfélag ...? Einstaklingar sem gefa síðuna út eru menntaðir á sviði brjóstagjafar og er gerð síðunnar 20 eininga verkefni við Háskólann í Reykjavík. Síðan er í eigu Medus ehf. kennslu og ráðgjafafyrirtækis sem sérhæfir sig á sviði brjóstagjafar. Ekki er greitt fyrir skrif á síðuna.

 Óhlutdræg umfjöllun

  • Hver er tilgangur vefsíðunnar? Efla brjóstagjöf á Íslandi, með því að efla heilsulæsi foreldra á sviði brjóstagjafar, stuðla að faglegum vinnubrögðum byggt á rannsóknum. Stuðla að símenntun með því að auðvelda heilbrigðisstafsfólki að finna rannsóknir og nota sem leiðbeiningar við vinnu.

  • Hve nákvæmar eru upplýsingarnar sem koma fram? Upplýsingar á síðunni eru byggðar á nýlegum rannsóknum og klassískum rannsóknum. Leitast er við að dýpka þekkingu lesandans og forðast er að vera með yfirborðslega umfjöllun. Notast er við þverfaglega nálgun s.s uppeldis og kennslufræði, sálfræði, hagfræði, markaðsfræði,  lýðheilsufræði, hjúkrunarfræði, læknisfræði og ljósmóðurfræði.

  • Er umfjöllunin einhliða eða er fjallað um efnið frá fleiri en einu sjónarhorni? Reynt er markvisst að kynna ólík sjónarhorn s.s í umfjöllun um sárar geirvörtur þar eru kynntar allar þær rannsóknir sem fundust um efnið.

 Nýjar upplýsingar

  • Hvenær var síðan unnin? Frá janúar 2009 - desember 2010.

  • Hvenær var síðan uppfærð síðast? Reglulega merkt fyrir neðan hverja grein.

  • Eru tenglar á síðunni virkir? Já. Gagnagrunnurinn er prófaður tæknilega einu sinni í mánuði.

  • Vísa tenglarnir í "góðar/áreiðanlegar" vefsíður og bæta þeir einhverju við efni vefsíðunnar? Já leitast er við að vísa á rannsóknir ásamt fréttum og skemmtiefni um brjóstagjöf. Markvisst er unnið að því að víkka út þekkingu lesandans og notuð er þverfagleg nálgun.

Við sem höfum unnið að vefsíðunni www.brjostagjof.is teljum okkur í öllum ofangreindum atriðum hafa staðið faglega að gerð síðunnar. Tilkynningar um nýtt efni eru settar á facebook en þannig er markvisst reynt að ná til fólks. Hægt er að skrá sig í hópinn brjóstagjöf.is. Hópurinn er öllum opinn sem áhuga hafa á efninu. Arnheiður Sigurðardóttir, nóvember 2010.

Háskólinn í Reykjavík, Reykjavík University, 2010.


Upphafs síðaStuðningur við foreldraBrjóstagjöf fullburða barnaSérstök brjóstagjöfBrjóstagjöf fyrirburaÝmislegt tengt brjóstagjöfFyrir fagfólk um brjóstagjöfÞær sem standa að brjostagjof.isÁhugavert efni um brjóstagjöfÞroski barna