|
Saga áhugastarfs við brjóstagjöf á Íslandi hófst í Skagafirði og í framhaldi af því hófst starfsemi stuðningshópa á Heilsugæslu Kópavogs og var hún í höndum Rannveigar Sigurbjörnsdóttur. Í framhaldi af því starfrækti Barnamál áhugafélag um brjóstagjöf, hópráðgjöf til fjölda ára og var hún í höndum hjálparmæðra. Hulda Sigurlína Þórðardóttir og Arnheiður Sigurðardóttir voru upphafsmenn af því starfi, en Hulda Sigurlína hvarf síðar til stafa á Heilsuhælinu í Hveragerði en Arnheiður starfrækti áfram stuðningshópa með hléum í nafni La Leche League International frá 1991 og nú síðast í Grensáskirkju fram til ársins 2010. Samhliða því héldu hjálparmæður hjá Barnamáli úti hópstarfi og símaráðgjöf.
Því er saga stuðningshópa ekki óslitin þar sem það var hlé á henni í ein 6-7 ár. Frá 2006-2010 hafa Arnheiður og Hulda Sigurlína starfrækt Opið hús einu sinni í viku. Árið 2009 tóku Arnheiður og Sóley Birgisdóttir báðar lýðheilsufræðingar saman námskrá og leiðbeiningar um hópráðgjöf til mjólkandi mæðra í diplómanámi í kennslufræðum við Háskólann í Reykjavík.
Umræðufundir sem fara fram í Opnu húsi eru allt annars eðlis en fyrirlestrar og ber að varast að ætla sér að halda erindi. Markmiðið er að halda uppi umræðum og leyfa rúman umhugsunartíma. Mæðurnar læra hver af annarri og þegar umræðufundir ganga vel þarf stjórnandi lítið að leggja til málanna. Umræðufundir geta verið mjög fjölbreytilegir og fer það eftir samsetningu hópsins hverju sinni. Umræðufundir um brjóstagjöf eru annars eðlis en aðrir hópfundir vegna eðlis verkefnanna sem mæður eru að takast á við.
Dæmi um spurningar á öðrum fundi.
1. Hvað teljið þið vera æskilegustu fyrstu föstu fæðuna? Ef þátttakendur nefna grauta þá. útskýra af hverju henti ekki brjóstabörnum.
2. Á hvaða tímabili teljið þið vera hvað erfiðast að uppfylla næringarþörf barnsins?
3. Hvaða snefilefni þarf að passa að fæðan innihaldi?
4. Hvernig verður til fjölbreytt máltíð?
5. Hvað er það sem ykkur liggur hvað mest forvitni á að vita?
6. Þekkið þið hver er munurinn á járnríkum og járnbættum mat?
7. Vitið þið af hverju mælt er með því að bæta olíu í mat barns?
8. Af hverju er mikilvægt að skipta reglulega um olíu?
9. Hafi þið einhverjar frekari spurningar?
Bækur um hópráðgjöf þar má helst nefna:
The New Leader´s Handbook Easy-to-Use Up-to- Date. Ritstjórar Mohrbacher, N. og Torgus, J. gefin út 1989.
Watch Handbook for Facilitaors when Assisting Learners in Groups. Höfundar Anna Sigurðardóttir, Björg Birgisdóttir og Sigríður Hulda Jónsdóttir. Gefin út 2004.
Mother-to-mother Support Handbook bæklingur gefinn út af La Leche League International.
Jafnframt er fjallað um hópráðgjöf í mörgum fræðibókum um brjóstagjöf. Rush Hospítal í Bandaríkjunum er hvað þekktastur fyrir hópráðgjöf sína til fyrirburamæðra. Árið 2009 voru Arnheiður og Guðrún Jónasdóttir virkir þátttakendur í hópráðgjöf á Florida Hospital í Bandaríkjunum.
Tekið saman af Arnheiði Sigurðardóttur nóvember, 2010. Uppfært febrúar, 2011.
Háskólinn í Reykjavík, Reykjavík University, 2010.
 |