www.brjostagjof.is
vefur um brjóstagjöf og uppeldi barna
Upphafs síðaStuðningur við foreldraBrjóstagjöf fullburða barnaSérstök brjóstagjöfBrjóstagjöf fyrirburaÝmislegt tengt brjóstagjöfFyrir fagfólk um brjóstagjöfÞær sem standa að brjostagjof.isÁhugavert efni um brjóstagjöfÞroski barnaCommon Page
Að leggja barn á brjóst
Brjóstagjöf barna fæddum eftir 37-39 vikna meðgöngu
Brjóstahöfnun í upphafi brjóstagjafar
A, B og C aðferðarlýsing
Handmjólkun og mjólkun með mjaltavél
Sárar geirvörtur
Brjóstastífla / brjóstabólga
Mjaltavélar útleiga
Formjólkurkveisa
Brjóstaverkfall
Brú til brjóstagjafar
Mjólkuraukandi jurtir
Þegar mjólkin hverfur
Verndandi þáttur
Klofinn gómur eða vör
Tunguhaft hjá nýburum
Kengúrumeðferð
Tvíburar, þríburar eða fleiri
Tvöföld brjóstagjöf
Tannskemmdir og brjóstagjöf
Brjóstagjöf eftir brjóstaminnkun
Reykingar og áfengisneysla
Súr lykt af brjóstamjólk
Götun á geirvörtum og Tattó
Offita og brjóstagjöf
Að hætta með barn á brjósti
Útivinna og brjóstagjöf
Ferðalög og brjóstagjöf
Hárlos og brjóstagjöf
A, B og C aðferðarlýsing

Efnisyfirlit

  • A, B og C meðferð

  • Myndbönd sem sýnir handmjólkun

  • Áhugaverðar greinar

Sum börn ná ekki að næra sig vel við brjóstið í upphafi þau eru í hættu á því að verða vannærð þar sem þau hafa mjög lítinn varaforða við fæðingu og þurfa meiri orku en fullburða heilbrigt barn til efnaskipta s.s við að halda á sér hita.

Börnin geta auðveldlega platað okkur en svo fá þau gulu og mörg þeirra þarf að leggja inn aftur. Þau geta verið jafn þung og fullburða barn en þroski þeirra er mun minni og þar með geta til að næra sig.

Undir venjulegum kringumstæðum myndum við hugsa um ásetningu (A), brjóstagjöfina og framleiðslu móður (B) og síðan kaloríu (C) inntekt (A, B & C). Þar sem fullburða heilbrigð börn krefjast ekki svo mikillar næringar fyrstu dagana.

En hvað þessi börn varðar verðum við að hugsa fyrst um Kaloríu (C) inntekt þeirra, brjóstagjöfina koma af stað framleiðslu móður (B) og svo síðast ásetninguna (A). Dæmið hefur snúist við í kaloríur (C), framleiðsla móður (B) og svo síðast ásetning á brjóst (A). 

Börnin eiga það sameiginlegt að nærast ekki nægilega vel við brjóstið þau einfaldlega hafa ekki næga orku til þess. Þess vegna er mikilvægt að móðirin hjálpi barni að innbyrða brjóstamjólk svo það fái næga næringu fyrstu dagana. Það getur hún gert með því að handmjólka sig í skeið eða staup eftir hverja gjöf og gefið barninu c.a 5 ml af eftirmjólk. Eftirmjólkin er hitaeiningaríkasta mjólkin og það er mjög dýrmætt fyrir þessi börn að fá hana.

Með því að handmjólka sig eftir hverja gjöf þá er reynt að koma í veg fyrir að barnið fái gulu og missi getuna til að næra sig við brjóstið. Smám saman öðlast barnið styrk til að næra sig vel við brjóstið og hefur næga orku til að ná sjálft í fituríku mjólkina. 

Heimild

Smith, L. J (2008). Why Johnny Can´t Suck: Impact of Birth Practices on Infant Suck. Í Genna, C. W. (ritstj.) Supporting Sucking Skills in Breastfeeding. Sudbury: Jones and Bartlett Publishers. 57-78.

Morton, J., Hall, J. Y., Wong, R. J., Thairu, L., Benitz, W. E. og Rhine, W.D. (2009). Combining hand techniques with elecric pumping increases milk production in mothers of preterm infants. Journal of Perinatology, 29, 757-764.


Hér má finna mjög gott myndband á breastfeeding.com sem sýnir sambland af tveimur aðferðum við handmjólkun.
Hér má finna myndband frá Ammehjalpen sem sýnir handmjólkun.
Hér má finna
myndband frá Standfor School of Medicine sem sýnir hvernig handmjólkun fer fram.

Hér má finna nánari umfjöllun um börn í áhættuhópi.  

Hér má lesa nánar um ABC og ásetningu barns á brjóst hjá Standford School of Medicine.

Hér má finna mjög áhugaverða grein eftir Marsha Walker (2008) um Late preterm infants.

Tekið saman af Arnheiði Sigurðardóttur, jan 2011.

Háskólinn í Reykjavík, Reykjavík University, 2010.


 


Upphafs síðaStuðningur við foreldraBrjóstagjöf fullburða barnaSérstök brjóstagjöfBrjóstagjöf fyrirburaÝmislegt tengt brjóstagjöfFyrir fagfólk um brjóstagjöfÞær sem standa að brjostagjof.isÁhugavert efni um brjóstagjöfÞroski barnaCommon Page