brjostagjof.is
vefur um brjóstagjöf
Upphafs síðaStuðningur við foreldraBrjóstagjöf fullburða barnaSérstök brjóstagjöfBrjóstagjöf fyrirburaÝmislegt tengt brjóstagjöfFyrir fagfólk um brjóstagjöfÞær sem standa að brjostagjof.isÁhugavert efni um brjóstagjöfÞroski barna
Veftré vefsíðunnar
Heilbrigðisyfirvöld og brjóstagjöf
Gæði vefsíðunnar brjóstagjöf.is
Andleg heilsa foreldra
Svínaflensa og brjóstagjöf
Upphafs síða

Efnisyfirlit

  • Inngangur


Þessi vefur er ætlaður mæðrum með börn á brjósti, aðstandendum þeirra,hjúkrunarfræðing-um, ljósmæðrum og öðru fagfólki sem og öllu áhugafólki um brjóstagjöf.  Fjallað er um brjósta-gjöf frá ýmsum sjónarhornum m.a. næringu, ónæmisfræði, tengslamyndun og sem uppeldis-aðferð.

   

Við erum þrjár sem  starfrækjum vefinn www.brjostagjof.is  Hulda Sigurlína Þórðardóttir, Arnheiður Sigurðardóttir og Guðrún Jónasdóttir. Vefsíðan www.brjostagjof.is varð til í kjölfar þess að á stuðningsfundum fyrir mjólkandi mæður kom greinilega fram skortur á aðgengilegu fræðsluefni um brjóstagjöf. Það var tímafrekt að gefa sömu leiðbeiningarnar oft á tíðum í gegnum tölvupóst, finna og benda á hinar og þessar vefsíður. Einnig urðum við varar við að mæður voru oft á tíðum að fá löngu úreltar leiðbeiningar. En segja má að síðan 2005 og nú aftur 2010 hafi orðið umbylting í rannsóknum á brjóstamjólk og brjóstagjöf.

Guðrúnu hafði dreymt um það í mörg á að starfrækja vefinn og hafði átt lénið í fjölda ára. Því tókum við okkur saman og hrundum í framkvæmd verkefninu sem hefur vaxið og dafnað og breyst töluvert. Í upphafi var vefurinn ætlaður mæðrum, en í dag er hann ekki síður skrifaður  fyrir hjúkrunarfræðinga, ljósmæður og annað heilbrigðisstarfsfólk.


Verkefnið
www.brjostagjof.is er 20 eininga verkefni Arnheiðar Sigurðardóttur til meistaraprófs í kennslu-fræðum. Ljóst er að vinnu við síðu sem þessa lýkur aldrei og mun þróast áfram svo lengi sem rannsóknir eru gerðar á brjóstagjöf og tengdum málefnum. Síðan er höfð aðgengileg þrátt fyrir að hafa ekki verið opnuð formlega, þar sem heimsóknir á hana fara stigvaxandi. Við biðjum því lesendur hennar að virða það við okkur að hvert og eitt málefni hefur ekki fengið sinn ákveðna stað á síðunni. Einnig vantar ýmsar aðgerðir sem verða settar inn síðar.


Við viljum hvetja lesendur til að hjálpa okkur við þróun síðunnar en það getið þið gert með því að senda okkur tölvupóst um þau málefni sem ykkur finnst vanta umfjöllun um á síðuna. Verkefnið hefur hlotið styrk frá Heilbrigðismálaráðaneytinu.

 
Við viljum þakka frábærar viðtökur á síðunni þrátt fyrir að hún hafi ekki verið opnuð formlega.


Takk fyrir, Arnheiður Sigurðardóttir 4. mars 2011.

Háskólinn í Reykjavík, Reykjavík University, 2010.

Er þú aflögufær?
Fjárframlag þitt hjálpar okkur að hjálpa öðrum.
Medus ehf. e-mail: arnheidur06[hjá]ru.is
Íslandsbanki: 545-26-20602 kt.470308-1680



Upphafs síðaStuðningur við foreldraBrjóstagjöf fullburða barnaSérstök brjóstagjöfBrjóstagjöf fyrirburaÝmislegt tengt brjóstagjöfFyrir fagfólk um brjóstagjöfÞær sem standa að brjostagjof.isÁhugavert efni um brjóstagjöfÞroski barna