Stundum getur verið nauðsynlegt að leita til brjóstagjafaráðgjafa með sértæk vandamál. Betra er að leita til hennar fyrr en seinna þar sem þrek og úthald varðandi brjóstagjöf, ef vandamál eru til staðar, dvínar er á líður og vandamál geta reynst erfiðari viðureignar. Hlutverk brjóstagjafaráðgjafa er að leita lausnar sem hentar fyrir móður og barn. Allar mæður vita hversu mikilvægt er að brjóstagjöf sé ánægjuleg til að hennar verði notið. Þrátt fyrir mikilvægi brjóstagjafar er nánd, snerting og kærleikur ásamt næringu það mikilvægasta fyrir barnið. Stundum þarf þó ekki flóknar aðgerðir til að móðir og barn njóti farsællar brjóstagjafar.
Brjóstagjafaráðgjafar:
Arnheiður Sigurðardóttir s. 893 3640 arnheidur06@ru.is
Hulda Sigurlína Þórðardóttir s. 897 0855 huldalina@simnet.is
Viðtal kr. 4.500
Vitjun og viðtal kr. 5.500
|