Námskeið

Reynslan sýnir að þrátt fyrir skipulagða fræðslu þá er enginn fundur eins og margar mæður koma aftur og aftur og er fengur að þeim.  Þær miðla þannig af reynslu sinni til hverrar annarrar og geta einnig óskað eftir að fjallað verði um ákveðin málefni óháð efni fundarins.  Oft koma mæður með ákveðnar spurningar í huga. 

Þó fundirnir séu sniðnir að mæðrum og börnum þeirra þá eru feður, ömmur og afar ávallt velkomnir sem og þeir sem vilja fræðast um brjóstagjöf.  Viljum taka það fram af gefnu tilefni að börnin koma að sjálfsögðu með á þessa fundi. Sjá dagskrá.

Undirbúningur brjóstagjafar  

  

Brjóstagjöf 0-4 mánaða

Þetta námskeið er einkum hugsað fyrir verðandi mæður (feður einnig velkomnir) þar sem farið verður yfir það sem mikilvægt er að vita um brjóstagjöf og hegðun nýburans. Mæður með börn á brjósti eru einnig velkomnar.  
  
Á þessum fundi er mikið farið í grunnatriðin varðandi samsetningu brjóstamjólkur, verndandi þátt hennar, tengslamyndun, samskipti við brjóstabarnið t.d. fyrstu merki um hungur. Einnig er farið í mikilvægi þess að leggja barn rétt á brjóst, ýmis hagnýt atriði og fleira í þeim dúr.  Þessi fundur er einkar heppilegur fyrir þungaðar konur sem vilja fræðast um brjóstagjöfina.

Brjóstagjöf 4-6 mánaða  

Á þessum fundi er rætt um hvers brjóstabörn þarfnast helst þegar þau byrja að borða með, oftast uppúr 6 mánaði aldri. Hvaða fæða er heppilegust og hver eru fyrstu merki um að barn þurfi á einnig á  annarri fæðu að halda.  Rætt um hlutverk brjóstamjólkurinnar síðari hluta fyrsta ársins.

Brjóstagjöf 6-12 mánaða

Málefni sem brenna á mörgum mæðrum er umræðuefni þessa fundar.  Rætt um næturgjafir, hvað þær þýða og mikilvægi þeirra oft á tíðum og hvernig er hægt er að tryggja móður næga hvíld. Við tölum einnig um vinnu utan heimilis og hvernig má samþætta brjóstagjöf og útivinnu og loks er farið yfir leiðir til að enda brjóstagjöf.

Brjóstagjöf eftir eins árs aldur

 

  

  

Eins og margir vita eru leiðbeiningarAlþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) þannig, að æskilegt sé að börn fá eingöngu brjóstamjólk fyrstu 6 mánuði ævinnar, að brjóstamjólk sé aðalfæða barna allt fyrsta árið og með annarri fæðu til tveggja ára eða eins lengi og móðir og barn kjósa. 

Á þessum fundi förum við einkum yfir brjóstagjöf eftir eins árs aldurinn, næringu og tilfinngalegt mikilvægi.  Hvað þarf að hafa í huga þegar barn er á brjósti á þessum aldri, þýðingu fyrir móður og barn og mikilvægi stuðnings.    

  
  
  

 

  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
 
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
 
  
  
  
  
  
  
  
  
  

  Grein 6-24. maí er The infant Feeding activvity and Nurition Trial (INFANT) an   early intervention to prevent childhood obesity; Cluster-randomised control   trial hér.

  

  

  

  

  

  

  
  
© 2009 Medus ehf.

brjóstagjöf.is