Grein 6-24. maí er The infant Feeding activvity and Nurition Trial (INFANT) an   early intervention to prevent childhood obesity; Cluster-randomised control   trial hér.

  

  

  

  

  

  

  
  
© 2009 Medus ehf.

 
Að ná sér eftir fæðingu barns!
 

Þú er eflaust búin að lesa margar bækur og blöð um fæðinguna og markmið þitt er að komast í gegnum hana á sem heilbrigðastan og auðveldan hátt eins mögulegt er.  Það tekur um 40 vikur að skapa fullburða barn, mikil vinna felst í því að fæða barn og það er útilokað að þú finnir ekki fyrir því.

Það er ekki ætlunin að hræða þig, heldur hjálpa þér að undirbúa þig.  Þegar þú þekkir það sem þú gætir átt von á og notar þér rétt viðhorf getur það gert gæfumuninn hvernig þú bregst við. Þekkja muninn á því að finna til og þeim breytingum sem eðlilega eru að verða þegar líkaminn er að ná sér eftir fæðinguna.

Líklega finnur þú til óþæginda mismikið þó í einn eða fleiri sólahringa áður en kemur að fæðingunni.  Líkaminn er að undirbúa sig fyrir fæðinguna. 

  

  

Hvers vegna! 

Þú ert að fara í þá mestu líkamlegu vinnu sem þú framkvæmir á ævinni.  Athöfnin er ekki nefnd fæðing fyrir ekki neitt.  Fæðing er vinna og við hana notar þú allan líkamann.  Þú ert með álag á fæturna annarskonar en venjulega, magavöðvar þínir eru í fullri vinnu ásamt öllum vöðvum í líkama þínum.  Þó þú rembist bara í 10-15 mín ertu búin að framkvæma mestu líkamsæfingu sem þú framkvæmir á ævinni á mjög stuttum tíma.  Einnig er líkami þinn að búa sig undir að komast í fyrra horf fyrir getnað, en slíkt felur í sér miklar líffræðilegar breytingar á líkamsvökva, liðamótum og líðfestingum sem eru slakar vegna meðgönguhormónanna. 
Strax eftir fæðinguna minnkar leg þitt úr því að vera í stærð 40 vikna í meðgöngustærð 24 vikna.  Þetta þýðir að magavöðvar þínir verða slappir í töluverðan tíma.  Það tekur tíma að ganga saman aftur.  Vöðvar sem togaðir hafa verið í mestu mögulegu lengd, slappar festingar í kviðveggnum, það er engin furða að það taki töluverðan tíma að ná sér.

  

Hvað um verki?
Til að bæta enn frekar ofan á misjafna líðan eftir að hafa eignast barn eru stundum ýmsir fylgikvillar sem fylga fæðingu og meðgöngu sem ekki hverfa strax.  Þú gætir hafa verið klippt eða rifnað, verið með gyllinæð eða krampa í leginu eftir fæðinguna.   Þær sem lenda í keisaraskurði  eru einnig lengur að ná sér eftir skurðaðgerð ásamt því að annast lítið barn.  Verkir og óþægindi samfara þessu má meðhöndla á ýmsa vegu.
Fyrst að öllu verður þú að uppfylla grunnþarfir þínar vegna þess að þú ert
glæný mamma.  Þú verður að borða og hvíla þig ásamt því að annast nýjan einstakling.  Staðreyndin er sú að þreyta hrjáir flestar nýjar mæður, þú sefur ekki eins fast því þú ert með varann á þér og fylgist með unganum.
Þegar þú ert þreytt þolir þú sársauka ver en annars.  Fyrstu sex vikurnar ræður þú minna við sársauka en síðar vegna þess að þú ert þreytt.
Best er að ræða þetta við maka sinn eða stuðningsaðila.  Maki þinn getur hjálpað þér að annast barnið allt nema brjóstgjöfina en hana verður þú að framkvæma sjálf.  Mikilvægt er að passa að borða svo þú hafir næga orku.  Það að sofa og borða lagar þó ekki endilega það sem hrjáir þig.  Hvað annað getur þú gert til að fást við algengustu fylgikvilla meðgöngu og fæðingar?

  

Klippt eða rifnað!
Haltu sárinu hreinu, svæðið er aumt og viðkvæmt og að strjúka það með blautum klút er ekki það sem þig langar mest til.  Hvað er þá hægt að gera?  Lausan sturtuhaus má nota til að sprauta ylvolgu vatni á svæðið eftir hverja salernisferð eða ef það er ekki hægt má nota gosflösku með volgu vatni og gusa á svæðið.  Síðan skaltu þerra sárið vel.  Með þessu heldurðu sárinu hreinu, eykur blóðflæði til þess svo það grói fyrr.    Það að fara í setbað er einnig mjög gott, oft á dag í örfáar mínútur allt hjálpar þetta.  Sérstakur sethringur getur verið góður (ekki nota kút því þeir geta heft blóðflæðið). Með þessari meðferð máttu taka inn verkjalyf, drekktu mikið af vatni borðaðu gróft hægðaaukandi eða mýkjandi fæði.  Stundum getur þurft  að nota hægðalyf tímabundið.

Gyllinæðin hverfur oft sjálfkrafa en biðin getur verið óþægileg.  Ef þú finnur fyrir verkjum eða bruna tilfinningu getur setbað hjálpað mikið.  Gyllinæða þurrkur og krem færðu í apóteki eða Móðurást.  Drekktu nóg af vatni og borðaðu gróft fæði það kemur í veg fyrir að gyllinæðin versni frekar. Ef þú þarft eitthvað mýkjandi fyrir hægðirnar ráðfærðu þig þá við ljómóður eða læknir.

  

Krampar í legi.
Þú finnur að leg þitt er að dragast saman, sérstaklega þegar þú gefur brjóst.  Krampar þessir eru eðlilegir og þurfa ekki endilega að vera sárir en er þó misjafnt á milli kvenna.
Ef verkirnir eru mjög slæmir er þér óhætt að taka inn verkjalyf þá svona 30 mín fyrir hverja brjóstagjöf svo lyfið verði farið að virka er barnið fær brjóstið.
Stundum standa verstu verkirnir ekki nema í 3-4 daga eftir það verða þeir þolanlegri þar til þeir hverfa alveg.

Keisaraskurður eftir fæðingu er tvöfalt álag.  Þú verður að taka því rólega því eftir allt var þetta skurðaðgerð, þú finnur fyrir verkjum og verður eflaust að nota verkjalyf.  Varastu að lyfta upp þungum hlutum því þá gæti skurðurinn opnast.  Næstu tvær vikurnar er barnið það þyngsta það sem þú mátt lyfta.
Eftir 3-4 vikur getur þú leyft þér að gera meira en áður en ávallt að þeim mörkum að þú finnir ekki til.  Þegar ferðast er í bíl er gott að hafa auka kodda yfir kviðinn svo öryggisbelti nuddist ekki við skurðinn, en umfram allt farðu varlega og fáðu nauðsynlega hjálp.

Þegar líkami þinn er að ná sér líkamlega þarf að huga að andlegri líðan líka.
Meðgöngu og fæðingu má líkja við ferð í rússíbana ásamt því að þú ert þreytt, finnur til og ert að öðlast reynslu sem móðir og það er ekkert skrítið að 80 % mæðra finni fyrir fæðinga þunglyndi og um 15 % þjást af verulegu fæðingaþunglyndi.
Gerðu raunhæfar væntingar til þín og leitaðu þér aðstoðar sem fyrst ef þarf.
Mundu bara að það sem þú ert að ganga í gegnum er eðlilegt, margar mæður hræðast það að verða stimplaðar óhæfar mæður ef þær kvarta, en svo er ekki.
Allar mæður upplifa eitthver einkenni þunglyndis með nýfætt barn s.s sektarkennd, pirring, uppgjöf, kvíða, finnast þeim hafa mistekist eða eiga í erfiðleikum með að tengjast barninu.  Það er allt í lagi að leita sér hjálpar við að annast nýfætt barn, þú þarft ekki að gera allt sjálf.

Hver er fær um að sinna vinnu aleinn 24 tíma á sólahring, í daga og vikur.  Maki þinn hjálpar þér, foreldrar eða tengdaforeldrar allir þessir aðilar geta minnkað álagið á þér.  Lítið hlé  til að komast í bað eða sinna eitthverju öðru en barninu smá stund getur bætt líðan þína.  Lengri ferðir eins og í bíó enda oftast með því að farið er heim í hléi enda getur heil bíómynd verið of löng fjarvera, miklu heillavænlegra að gleyma sér yfir góðri mynd heima.  Einnig getur líkamsrækt eða gönguferðir hjálpað sjá hér í bækling Móðir barn og næring.

En ef þér finnst þú ekki ráða andlega við aðstæðurnar skaltu leita til læknis, til að skera úr um hvort þú sért ein af þeim sem þjáist af fæðingaþundlyndi.  Lyf geta oft hjálpað og það er enginn skömm af því að fá aðstoð geðlæknis.

Umfram allt reyndu að finna út það sem hentar þér og þinni fjölskyldu til að bæta líðan ykkar allra. Að lokum mitt í þessu öllu njóttu þess að vera móðir, við höfum ekki fjallað neitt um brjóstagjöfina, enda af svo mörgu að taka þar, en ágæt grunn lesning er bæklingurinn Brjóstagjöf gefin út af Medela (dreift m.a. í Móðurást).  Ef einhver vandræði koma upp skaltu leita þér hjálpar hjá ljósmóður eða brjóstagjafaráðgjafa.  Mikið af fræðsluefni um brjóstagjöf má finna á www.brjóstagjof.is og www.modurast.is.

Þýtt og staðfært
Arnheiður Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur B.Sc. IBCLC.

  

Einnig má finna upplýsingar á www.ljosmodir.is sjá hér.

  

  

Brjóstagjafaráðgjafar:

  

Arnheiður Sigurðardóttir  s. 893 3640 arnheidur06@ru.is

hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur, brjóstagjafa-leiðbeinandi og ráðgjafi, stundar MEd. nám víð HR.

Hulda Sigurlína Þórðardóttir s. 897 0855 huldalina@simnet.is

hjúkrunarfræðingur, brjóstagjafaleiðbeinandi og ráðgjafi og ljósmæðranemi við HÍ.

Viðtal kr. 4.500

Vitjun og viðtal kr. 5.500

  

  

  

brjóstagjöf.is