Faðirinn er í flest öllum tilfellum aðalstuðningsaðili móður, sá sem hvetur hana áfram sér til þess að hún geti sinnt hlutverki sínu og gefið barni brjóst. Með öðrum orðum faðirinn er þjálfarinn, þess vegna er mikilvægt að verðandi feður og mæður undirbúi sig saman undir komandi brjóstagjöf. Þannig að þegar móðir þarf hvatningu og ráð þá sé faðirinn í stakk búin til að veita hvatningu, aðstoð og saman hjálpist þau að til að leysa þann vanda sem óhjákvæmilega kemur upp þegar nýr einstaklingur kemur í heiminn.
Faðirinn er til staðar um miðjar nætur, á kvöldin og um helgar þegar líklegast er að spurningar verði til. Þess vegna er svo æskilegt að hann þekki hvernig mjólkin verði til, hvernig má auka hana, hvernig leggja á barn á brjóst og til dæmis hvernig hann geti aðstoðað móður við að handmjólka sig.
Af þessu má vera ljóst að mæður og feður ættu að læra saman um brjóstagjöf því þegar móðir efast eða er við það að gefast upp þá hafi hún aðila hjá sér sem hvetur hana áfram og minnir á hvað þau geta gert svo fjölskyldunni allri líði vel. Það er nefnilega ekki lítið mál að verða foreldri og brjóstagjöfin er starf sem báðir foreldrar verða að sinna.
Ágæti faðir mundu að þú er virkur þátttakandi sá sem lærir, túlkar og minnir á. Gerðu þá kröfu til þeirra sem annarst ykkur að einnig sé talað við þig. Þú ert sá sem verður að fylgjast vel með, sjá hvernig farið er að svo þú getir leiðbeint barnsmóður þinni þegar þið eruð ein heima. Þú er með henni mun meira en sérfræðingarnir þannig að þitt hlutverk er ekki lítið.
|