Súr lykt af frosinni brjóstamjólk! 

  

Allar mæður sem ætla að frysta mjólk ættu að frysta prufueiningar og afþíða eftir viku eða svo til að vera vissar um að mjólkin sé í lagi. Ef það er finnst súr lykt af mjólkinni gæti móðirin þurft að hita hana að suðu fyrir frystingu til að eyðileggja ensímið í mjólkinni sem brýtur niður fitu.

Mæður sem hafa af miklum krafti mjólkað sig og fryst mjólkina til að búa sig undir að fara út á vinnumarkaðinn hafa sér til mikillar skelfingar uppgötvað að þær væru með fullan frysti af súrri mjólk. Þetta gerist hjá mæðrum sem hafa hátt hlutfall af lípasanum sem brýtur niður fitu í mjólkinni. Hjá sumum mæðrum með hátt hlutfall af lípasa finnst lyktin strax þegar mjólkin hefur verið kæld niður í ísskáp en hjá öðrum finnst hún ekki fyrr en mjólkin hefur verið frosin um tíma.
 
Sem betur fer gerist þetta sjaldan en hægt er að koma í veg fyrir að það gerist yfirleitt. Móðirin ætti að byrja á því að frysta mjólk í smáskömmtum og prófa eftir s.s. vikutíma hvort hún er í lagi.
Ef mjólkin reynist súr þegar hún er þídd getur móðirin komið í veg fyrir þetta með því að hita mjólkina að suðu (loftbólur til hliðanna en má ekki sjóða) strax eftir að hún mjólkar sig, kæla strax og frysta. Hitunin gerir lípasann óvirkan (Lawrence and Lawrence bls. 696). Þegar mjólkin hefur fengið þessa súru lykt, er ekkert hægt að gera til að laga hana. Ekki er vitað hvort mjólkin er hættuleg börnum í þessu ástandi, en flest börn harðneita að drekka hana.
Einnig hafa einhverjar mæður kvartað undan vægri sápulykt af frystri mjólk eftir þíðingu. Þessi lyktarbreyting hefur verið tengd breytingum á mjólkurfitu þegar mjólkin er geymd í frystihólfum í sjálfþíðandi ísskápum og engin hætta talin stafa af fyrir barnið sem neytir hennar (Lawrence and Lawrence bls. 696).

Guðrún Jónasdóttir.

 

  
  
  

 

  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
 
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
 
  
  
  
  
  
  
  
  
  

  Grein 6-24. maí er The infant Feeding activvity and Nurition Trial (INFANT) an   early intervention to prevent childhood obesity; Cluster-randomised control   trial hér.

  

  

  

  

  

  

  
  
© 2009 Medus ehf.

brjóstagjöf.is