Nýburagula

  

  

  

Nýburagulu má oft fyrirbyggja á mjög einfaldan hátt. En það er gert með því að sjá til þess að barnið innbyrgði nægilegt magn af kaloríum.

Vegna vanþroska við fæðingu ná sum börn ekki að næra sig nægilega vel við brjóstið þrátt fyrir að vandað hafi verið til ásetningar og barnið taki brjóstið rétt. Einfaldlega vegna þess að það hefur ekki nægar orku og varabirgðir til að ganga á fyrstu daganna afleiðingin verður að barnið þróar með sér nýburagulu. Börnin virðast við fyrstu sýn fullkomlega eðlileg en drekka bara ekki nægju sína. Þau verða í kjölfarið slöpp og syfjuð og hætta að örva mjólkurmyndun móður. Þannig að afleiðingin tvíþætt bæði hjá móður og barni.

Til að hjálpa þessum börnum og koma í veg fyrir að þau fái nýburagulu er æskilegt að móðir handmjólki sig í staup eða skeið eftir hverja gjöf og gefi barninu ábót af fituríkri eftirmjólk sjá leiðbeiningar undir handmjólkun.

Með þessu litla inngripi er séð til þess að barnið innbyrgði nægilegt magn orku og mjólkurmyndun móður er komið vel af stað með virkjun prólactin viðtaka. Móðir hefur ca. 3-5 daga til að virkja prolactin viðtaka í brjóstum sem koma til með að hafa áhrif á getu hennar til að mjólka barni sínu til langs tíma.

Mæður sem ekki hafa virkjað nægilega vel framleiðslu sína í upphafi eru mun líklegri til að eiga í erfiðleikum að fullnægja þörf barnsins fyrir næringu. Einnig sýna fjölmargar rannsóknir Bell að æskilegt er að móðir og barn séu sem minnst aðskiln fyrstu daganna. En fram kom í rannsóknum Bella að ef móðir og barn sváfu saman í stað þess að notast við ungbarna vöggu fyrstu daganna hafði það jákvæð áhrif á getu móður til að mjólka til lengri tíma litið.

Hér má lesa um nýburagulu á ljosmodir.is

  

Hér má lesa nokkrar rannsóknargreinar Helenu Bell úr ýmsum tímaritum

frá 2002-2007.

1. Breastfeeding, Bed-Sharing, and Infant Sleep

2. New” practice of bedsharing and risk of SIDS 

3. Reason to share: why parent sleep

4. Parent-infant bed-sharing behavior

5. The prevalence & characterstistics

 

Hér má finna myndband sem sýnir hvernig mæður fara að við það að handmjólka sig.

  

  
  
  

 

  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
 
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
 
  
  
  
  
  
  
  
  
  

  Grein 6-24. maí er The infant Feeding activvity and Nurition Trial (INFANT) an   early intervention to prevent childhood obesity; Cluster-randomised control   trial hér.

  

  

  

  

  

  

  
  
© 2009 Medus ehf.

brjóstagjöf.is