Broddur
Broddur er fyrsta mjólkin sem kemur í brjóstin oft nefndur fyrsta bólusetningin. Broddurinn á ávalt að vera fyrsta næringin sem barnið fær en hann er talin forrita barnið fyrir lífstíð. Ekki ná öll börn að mjólka til sín broddinn og í þeim til fellum þarf að nálgast hann með handmjólkun og/eða mjaltavél (tvöfaltsett). Broddin þarf að gefa í réttri röð því er hentugast að nota önnur ílát undir hann en pela og merkja sérstaklega með númeraröð. Þrátt fyrir að broddur hafi verið frystur á ávalt að nota hann sem fyrstu næringu. Það ætti aldrei að blanda í hann þurrmjólk né bætiefna bæta hann. Ef móðir getur ekki gefið brjóst eða mjólkað sig vegna veikinda, þá þarf ljósmóðir að mjólka hana svo hægt sé að ná í þessa mikilvægu næringu sem broddurinn er og það þarf að gerast eins fljótt og mögulegt er eftir fæðingu.
Fyrstu 14 dagarnir eru mikilvægastir sérstaklega á það við um fyrirbura en á þessum tíma verður til bakteríuflóra í meltingarvegi. Ef fyrirburi fær tilbúna ungbarnablöndu margfaldast líkur á að hann þrói með sér þarmadrepsbólgu. Á fyrstu 3 dögunum verða til prolaktín viðtakar í brjóstum móður og ef þeir eru ekki virkjaðir í fulla virkni strax í upphafi verður mun erfiðara að koma mjólkurmyndun vel af stað.
Ef þarf að gefa ábót þarf hún helst að vera í formi brjóstamjólkur svo ekki sé hætta á því að óæskilegar bakteríur í meltingarvegi nái yfirhöndinni og valdi veikindum hjá barni en slíkt getur í sumum tilfellum reynst barninu lífshættulegt sérstaklega á það við um mjög mikla fyrirbura.
Það er mikilvægt að fyrirburamæður handmjólki fram brodd fyrstu 3 dagnna 5x á dag eftir gjöf samhliða því fari hún í mjaltavél og noti við tvöfalda mjólkun. Þannig virkjar hún mestu möguleika sína til hámarks mjólkurframleiðslu til lengri tíma. Einnig er mikilvægt að mæður sem eignast börn sem ekki hafa fulla getu til að næra sig vegna vanþroska eða aflögunar á höfði mjólki fram brodd og gefi barninu eftir gjafir svo ekki fái gulu.
Arnheiður Sigurðardóttir.
Heimild;
Meir PP, Engstrom JL. (2007). Evidence-based practices to promote exclusive fedding of human milk in very low-birthweight infants. NeoReviews. 8(11); e467 Accessed 4/15/2009.
Meier, PP. Engstrom, JL. Patel, AL. Jegier, Bj. Bruns, NE. Improving the use of human milk durning and after the NICY stay. Seminars in Perinatology, in press.
Morton, (2009).
Morton, (2010).
Parel, AL. Meier, PP. Engstrom, JL.(2007). The wvidence for use of human milk in very low-birthweight preterm infants. NeoPeviews. 8(11);e459 Accessed 4/15/2009.
Riccardo Davanzo (2010). Nutrition With Human Milk. Italy. Medela.
|