Mjólkun
Hvernig er best að bera sig að? Hversu oft á að mjólka sig? Hvenær á að hefja mjólkun? Til hvers að leggja allt þetta á sig?
Hér má finna myndband sem sýnir hvernig bera sig á að við notkun á mjaltavél og blandað saman mjólkun með mjaltavél og handmjólkun. Rannsóknir Morton (2009 & 2010) hafa sýnt fram á betri árangur í að viðhalda mjólkurframleiðslu fyrirburamæðra efir 8 vikur með þessum aðferðum.
Þegar móðir handmjólkar og kreistir brjóstin eftir að hafa mjólkað sig í mjaltavél er hún að mjólka hitaeiningarríkustu mjólkina og á henni þarf barnið að halda.
Hér má finna nákvæmar leiðbeiningar um mjólkun í mjaltavél.
Festar fyrirburamæðra framleiða mjólk.
Fyrstu þrír dagarnir er hvað mikilvægasti.
· Mjólkun er mikil vinna í byrjun.
· Mjólka sig strax eftir fæðingu barns.
· Fara í mjaltavél í >10-20 mín.
· 8-12 x á dag alla daga.
· Varast að láta líða meira en 3 tíma milli þess sem farið er í mjaltavél.
· Fylgdu stundaskrá -það hjálpar sjá mjaltaplan hér.
· Mjólkun í mjaltavél tekur tíma.
Móðir er að framleiða nauðsynlegt lyf fyrir barnið sitt. Mikilvægt er að móðir kynnist starfsemi líkama síns og taki mið af sinni framleiðslugetu. Sumar mæður geta farið sjaldan í mjaltavél á meðan aðrar þurfa að fara oftar, en þegar degi er lokið mjólka þessar mæður jafn mikið á sólarhringsgrundvelli.

One-Day Pump Set eru ætluð til notkunar í 8 skipti eða í 24 tíma þá er þau endurnýjuð.

Margnotasett má aftur á móti nota í lengri tíma, sjóða og þvo aftur og aftur.

|