Tunguhaft
Þegar við hugsum um tunguhaft og hvernig laga má það kemur eflaust upp í huga okkar einfaldast birtingarmynd þess. Þegar aðeins þarf að klippa á það með einni lítilli aðgerð og allt smellur í lag móðirin hættir að finna til við gjöf og barninu tekst að næra sig vel.
En því miður er þetta ekki alveg svo einfalt. Margskonar birtingarmynd tunguhaft er til og ekki nema á sviði sérfræðing að meta hvernig það hefur áhrif á brjóstagjöfina.
Hér fyrir neðan er kynning á tveimur rannsóknum sem gefa okkur aðeins innsýn í hvað tunguhaft er og hvaða áhrif það getur haft á brjóstagjöfina því langt frá því að vera tæmandi.
Stundum eiga börn erfitt með að næra sig við brjóstið. Hér er fræðigrein Sucking Characteristic of successfully breastfeeding infants with ankyloglossia: a case series.
Talið er að hægt sér að rekja 25-44% tilfella þar sem vandamál er við brjóstagjöf til tunguhafts hjá barni. Vandamálin birtast í sársauka í geirvörtum hjá móður, barn tekur illa brjóstið, minnkun verður á mjólkurmyndun hjá móður, barn nærist illa og gjafirnar eru stuttar. Tilfellarannsókn þessi var gerð á 5 börnum með tunguhaft þar sem engin vandamál voru með brjóstagjöfina. Sogkraftur barnanna var út fyrir viðmiðunarmörk þrátt fyrir það voru börnin vel nærð og engin mæðranna fann fyrir sársauka í geirvörtur. Í þessari rannsókn kom fram þrennskonar hegðun á sogi barnanna. Það er athyglivert að rannsókn þessi sýndi að tunguhaft hafði ekki áhrif á brjóstagjöfina.
Geddes, D.T., Kent, J.C., McClellan, L.M. og Hartmann, P.E. (2009). Sucking characteristics of successfully breastfeeding infants wiht ankyloglossia: a case series. Acta Pædiatrica, 99, 301-303.
Hér má finna grein Frenulotomy for breastfeeding infant with akyloglossia: effect on milk reomoval and sucking mechanism as imaged by ultrasond.
Talið er að 3-11 % barna séu með tunguhaft og 13-44% þeirra gangi í gegnum erfiðleika við brjóstagjöf. Þessi rannsókn er fyrsta sinnar tegundar sem sýnir fram á að sólahringsinntaka barna við brjóstið sé meira eftir aðgerð en fyrir aðgerð eða 36 - 362 g. Í töflu í greininni má sjá breytingu á næringarinntekt barnanna. Meðal inntaka þeirra fyrir aðgerð drukkið af hægra og vinstra brjósti 259 ± 239 g og 199 ± 93 g heildar magn 455 ± 323.
Eftir aðgerð var meðaltals næringarinntekt frá hægra brjósti 345 ± 254 g og vinstra brjósti jókst hún í 265 ± 65 g. Næringarinntaka eftir aðgerð fór í 615 ± 289 g sem er veruleg aukning á magni mjólkur sem barnið drekkur á skemmri tíma.
Helstu niðurstöður voru að næringarinntaka barna jókst verulega einnig dró úr sársauka í geirvörtum meðal mæðra við brjóstagjöfina. Aðeins eins ein móðir hafði þörf fyrir mexikanahatt á móti fjórum fyrir aðgerð. Samhliða þessu skoruðu móðir og barn hærra hvernig gáfu og tóku brjóstið (LATCH tool). Sýnt var fram á að börn með tunguhaft sjúga brjóstið á tvo ólíka vegu.
Birtingarmynd tunguhafts er tvennskonar.
1. Lítil sogkraftur hjá barni
2. Barnið klemmir saman brjóstið (bítur)
Þegar skorið er á tunguhaft þá breytist hreyfing tungunnar í brjóstagjöfinni og sársauki í geirvörtunni minnkar hjá móður.
Geddes, D., Langton, D. B., Gollow, I., Jacobs, L. A., Hartmann, P. E. og Simmer, K. (2008). Frenulotomy for Breastfeeding Infants With Ankyloglossia: Effect on Milk Removal and Sucking Mechanism as Imaged by Ultrasound. Pediatrics 122, 187-194.
Þessar tvær rannsóknir eru ólkar af því leiti að önnur rannsakar þar sem vandamál er til staðar í brjóstagjöfinni og hin ekki. Þrátt fyrir að vera báðar að skoða áhrif tunguhafts á brjóstagjöfina. Því má vera ljóst að birtingarmynd þess í brjóstagjöfinni getur verið margskonar. Önnur lýsir tveimur sogaðferðum hin þremur meðal barna með tunguhaft.
Það er ekki einfalt að meta og meðhöndla tunguhaft birtingarmynd þess er marskonar. Hægt er að kynna sér það nánar í bók Watson Gen Supporting Suckling skill in breastfeeding infant.
|