Hjálparbrjóst Fósturmæður sem áhuga hafa á að mjólka fósturbarni (Induced Lactation) geta lesið hér um hvernig koma á mjólkurframleiðslu af stað án þess að hafa gegnið með barnið.
Að mjólka ættleiddu barni var eitt sinn fyrirsögn á forsíðu Mothering Magazine. Er brjóstagjöf val fyrir mæður sem ættleiða börn? Já. Eftirtaldar vefsíður veita þér frekari upplýsingar http://www.fourfriends.com/abrw. http://adoption .about.com/library/weekly/aao72400a.htm Hér kemur frásögn móður af reynslu sinni. "Ég ætlaði að brjóstfæða ættleitt barn mitt og ef mér tækist ekki að mjólka nóg ætlaði ég að mjólka því samhliða ábótargjöf og nota hjálparbrjóst. Meðferðin fólst í að nota getnaðarvarnapilluna í ákveðin tíma þegar henni var hætt tók við mjólkuraukandi lyf, þar sem ég beið eftir barninu. Ég trúði því að mjólkin sjálf væri ekki aðalatrið heldur tengslamyndunin, þetta andlega samband sem verður til á milli móður og barns. Mjólkin sjálf yrði bara í plús við allt annað sem fylgdi brjóstagjöfinni. Ég byrjaði að mjólka mig með brjóstadælu á tveggja tíma fresti allan sólahringinn til að koma mjólkurmyndun minni af stað. Ég vissi ekki á hverju ég átti von á því hver og ein kona bregst misjafnlega við þessari meðferð. En aðeins fjórum dögum eftir að ég hafði hætt á getnaðarvarnarpillunni fór ég að mjólka. Ég notaðist við tvöfalda mjólkun en slíkt veitir meiri örvun ein einföld mjólkun. Þetta var stórkostleg reynsla ég var farin að mjólka heil ósköp og gat því fækkað þeim skiptum sem ég mjólkaði mig niður í þrisvar á sólahring. Fljótlega var ég búin að fylla tvo frysta af brjóstamjólk. Þegar ég var búin að fylla alla frysta varð ég að fá að geyma mjólk hjá ættingjum ásamt því að ég gaf mjólk í mjólkurbanka fyrir börn sem þurftu á henni að halda. Ættleiðingin tafðist og ég var mjög vonsvikin. Líkami minn og hugur voru tilbúin að ættleiða og brjóstfæða barn".
Mexikanahattar Brjóstskjöldurinn/mexikanahattur getur oft leyst margvísleg brjóstagjafar vandamál. Mæður hafa fyrir löngu uppgötvað að þeir geta stundum hjálpað þeim. Saga mexikanahatts er nokkur hundruð ára gömul og í upphafi voru þeir ýmist úr tré, leðri jafnvel silfri. Það var ekki fyrr en löngu seinna sem gúmmí mexikanahattar komu á markaðinn og í dag eru allir mexikanahattar gerðir úr silikoni. Því hefur verið haldið fram að barn sem fær pela geti ekki nært sig við brjóstið. Þetta á eftir að staðfesta með rannsóknum. En reynslan hefur kennt okkur sem vinnum við að aðstoða mæður að pelinn er oft upphafið að vandamálinu. Þess vegna hefur verið mælt með því að staupa börn frekar en að nota pela eða mexikanahatt. Mæður hafa oft ekki hlustað á sérfræðingana og farið eftir eigin hyggjuviti og hafa oft náð tökum á brjóstagjöfinni með því að nýta sér ýmis hjálpartæki. Enda eru þær rannsóknir sem sýna fram á að mexikanahattar dragi úr mjólkurmyndun mjög gamalar og þeir voru þá úr þykku gúmí sem þeir eru ekki úr í dag. Reyndar hafa nýlegar rannsóknir Meire ( ) á fyrirburum sýnt okkur fram á að þeir drekki við brjóstið allt að 75% meira með mexikanahatti. Það kom fram í rannsókn Sveinbjargar Brynjólfsdóttur (2009) og Nyqvist (2009) að mæðurnar sögðu mexikanahattinn hjálpa sér við brjóstagjöfina. Mexikanahatturinn er dæmi um hjálpartæki sem brjóstagjafaráðgjafar hafa verið mikið á móti notkun á, og haldið því fram að þeir orsaki sogvillu, eyðileggi möguleika barnsins til að sjúga brjóstið rétt, brjóstið fái þar að leiðandi ekki næga örvun, sem leiði til þess að brjóstið sé ekki örvað nægilega til nægrar mjólkurmyndunar eða að barnið geti ekki mjólkað brjóstið nægilega mikið. Reynslan en samt sú að þetta á ekki við alla. Hvað er mexikanahattur að skemma þegar eingin brjóstagjöf fer fram án hans. Er hann þá ekki að hjápa? Mexikanahattur hefur hjálpað mörgum mæðrum og börnum til að ná tökum á brjóstagjöfinni. Hver og ein móðir verður að vega og meta sínar aðstæður og hvort mexikanahattur geti hjálpað henni. Ef móðir mjólkar mjög mikið og rennslið er svo mikið að barninu svelgist á getur mexikanahattur hjálpað til að hægja á rennslinu og barnið nýtur gjafarinnar í stað þess að svelgjast mörgum sinnum á. En ef þú mjólkar lítið eða hefur mjög slappt losunarviðbragð þá hentar mexikanahatturinn þér ekki, þar sem barnið getur ekki mjólkað nægja mjólk í gegnum hattinn því ráðlegg ég þér að nota hann ekki í þessu tilfelli. Hafa skal í huga við notkun á mexikanahatti.
•Mexikanahatt á ekki að nota í byrjun brjóstagjafar þegar barnið er að fá broddinn, fyrstu daga brjóstagjafarinnar. •Fylgist með hvort mjólkin flæði vel í gegnum mexikanahattinn, þegar barnið hefur sogið í nokkrar mínútur, takið þá barnið af brjóstinu og skoðið hvort ekki sé mjólk í hattinum, ef engin mjólk er í hattinum bendir það til þess að barnið ráði ekki við að mjólka brjóstið í gegnum hattinn. Því skildi notkun hans hætt. En ef það er pollur af mjólk í hattinum má halda brjóstagjöfinni áfram með hattinn eins lengi og þörf er á. •Ef þér finnst að gjafirnar séu farnar að lengjast óeðlilega mikið eða að þér finnst mjólkin í brjóstunum hafa minnkað þá skaltu hætta notkun mexikanahatts strax. •Mörgum börnum gengur betur að nota lítinn mexikanahatt (en þeir eru einungis fáanlegir frá medela), þannig að ef barnið nær ekki góðum tökum á staðlaðri stærð skaltu reyna þá minni (stærðir S, M og L). Vandamál leyst.
Eftirtalinn brjóstagjafa vandamál má oft leysa með notkun mexikanahatts. •Erfitt að koma litli barni á brjóst þar sem móðirin er með stórar geirvörtur, flatar eða innfallnar geirvörtur. Oft dugar að móta geirvörtuna (gott að bleyta þær upp með saltvatnsþurrkum) og móta hana í laginu eins og munn barnsins. Stundum nær móðirin ekki að gera þetta ein heima án allrar aðstoðar. Þó að ágætlega hafi tekist til hjá brjóstagjafaráðgjafa. Í þessu tilfelli er betra að nota mexikanahatt þar til stærð barns og brjósta hafa vaxið í betra hlutfall. Barnið nær taki á brjóstinu með mexikanahattinum og brjóstagjöf heldur áfram.
•Þegar móðir fær óvænt mikinn stálma eða hörð og yfirfull brjóst. Stundum nær barnið ekki taki á brjóstinu vegna þess að það er svo mikið þanið. Venjulegast nægir að mjólka örlítið framan af brjóstinu svo barnið ná betur taki á því. En ef ekki er til brjóstadæla og móðir kann ekki að handmjólka sig getur mexikanahatturinn oft hjálpað. Hann er þá notaður í nokkrar mínútur meðan barnið nær að mýkja brjóstið svo hægt verði að móta það.
•Barnið sem vill ekki sjúga. Lágt hlutfall barna hefur mjög veikan sogreflex. Þessi börn virðast taka brjóstið rétt og ekkert virðist vera að annað en þau sofna mjög fljótt, virðast ekki hafa áhuga á að næra sig eða fara að gráta við brjóstið og ýta sér frá því. Þessi börn fara oft að sjúga vel með mexikanahatti, hugsanlega vegna meiri örvunar í munni. Stundum þarf aðeins að nota mexikanahattinn í örfáar gjafir, en stundum í nokkrar vikur þar til barnið getur sogið brjóstið milliliða laust. •Sárargeirvörtur. Það að leiðrétta stöðu og sog barnsins við brjóstið leiðréttir það vandamál strax í flestum tilfellum. En ef þú finnur ekki aðra leið en að nota mexikanahatt til að bæta aðferð þína þá er það betra en að þjást og fá verri sár eða jafnvel að gefast upp og hætta brjóstagjöf. Berðu þunnt lag af Lansinoh á geirvörurnar eftir hverja gjöf, svo sárinn grói fljótt svo ekki komist sýking í þau. Lansinoh dregur einnig mikið úr sársauka þar sem það kemur taugaendum í rétt rakastig, eykur innri raka húðarinnar, því líklegra að þú getir lagt mexikanahattinum fyrr en ella. •Mikið mjólkurfæði. Mjólkin flæðir svo hratt hjá sumum mæðrum að barnið ræður ekki við rennslið. Barnið sýgur í stuttan tíma, fer að svelgjast á og hósta. Barnið ýtir sér frá móðurinn og byrjar að gráta. Hver gjöf verður erfið og móðir fyllist hræðslu og kvíða að barnið hreinlega drukkni í mjólkinni. Mexikanahattur getur þarna hægt á rennslinu þannig að barnið getur nært sig á sínum hraða. Með aukinni færni barnsins og aldri getur það sleppt hattinum. Ef við hlustum á þær mæður sem notað hafa mexikanahatta á árangursríkan hátt er augljóst að þeir hafa reynst sumum vel. Ágæta móðir ef þér finnst mexikanahattur hjálpa þér þá er þér óhætt að nota hann. Hafðu bara til hliðsjónar hættu merkið og ef þau koma fram hjá þér þá verður þú bara að bregðast við þeim og leita þér aðstoðar. Gott ráð til að koma mexikanahattinum rétt fyrir er að bera innan á barma hans lansinoh þannig að hann renni ekkert til í gjöfinni. Það getur reyndar verið svolítið leiðinlegt að þurfa að nota mexikanahatt sem millistykki, muna eftir honum þvo hann og sjóða reglulega, en hvað er ekki gert fyrir ánægjulega brjóstagjöf. Sömu grundvallar atriði gilda við að leggja barn á brjóst þegar notaður er mexikanahattur og án hans. Það á engin hreyfing að vera á hattinum aðeins á að sjást bylgjuhreyfing á brjóstinu í gjöf. Það er betra að móðir reyni notkun mexikanahatts áður en hún gerir hlé á brjóstagjöf eða hættir henni alveg s.s vegna sársauka í geirvörtum. Það má aldrei gera gat á mexikanahatt eða skera framan af honum þar sem silikonið getur orðið flugbeitt við slíka meðhöndlun og jafnvel skorið barnið. Arnheiður Sigurðardóttir
Hvernig er mexikanahattur settur yfir geirvörtuna? Byrja þarf á því að velja rétta stærð, og hann þarf að taka mið af stærð geirvörtu og munn barns sem gerir þetta flóknara en ella. Því stundum passa móðir og barn einfaldlega ekki saman og mexikanahatturinn er notaður eins og millistykki. Togað er í tvær hliðar mexikanahattsins fyrir neðan þar sem tekið er út fyrir nefi barnsins og hann hafður allt af því úthverfur því næst er hann settur við brjóstið um leið og móðir hallar sér fram. Því næst er hann lagður þétt upp að brjóstinu. Hér má finna rannsóknargrei |