Handmjólkun

  

Handmjólkun ættu allar mæður að læra og vera færar um að framkvæma strax fyrstu daganna eftir barnsburð. Það er vegna þess að algengt er að mæður telji sig ekki mjólka nægilega mikið fyrir barn sitt oft innan við mánuði eftir fæðingu barns.

En á fyrstu dögum eftir fæðingu barns er talið að verði til prolatín viðtakar sem opnast eins og blóm og ef þeir eru ekki virkjaðir lokist þeir og leggjast í dvala þar til móðir eignast barn næst. Með því að móðir handmjólki sig eftir gjöf sýna nýlegar rannsóknir Morton (2009 & 2010) að auka megi mjólkurmyndun hjá móður og merkjanlegur munur megi sjá mjólkurmyndun eftir 8 vikur. Ef móðir hefur eignast fyrirbura þá er mikilvægt að hún fari snemma í mjaltavél og handmjólki sig svo í lokinn samhliða eins oft og hún mögulega getur (5x á 24 tímum).

Hér má finna myndband sem sýnir hvernig mæður fara að við það að handmjólka sig.

Taka ber fram að myndbandið er ekki alveg nýtt og lýsir því hvernig barn tekur brjóst ekki rétt þar sem nýjar rannsóknir Geddes og félaga frá 2006 hafa sýnt fram á annað og umbilt humyndum okkar um hvernig barn mjólkar brjóstið.  En að öðruleiti er myndbandið mjög gagnlegt og sýnir vel hvernig fara á að við handmjólkun.

Fjölmargar rannsóknir niðurstöður benda á að algengasta ástæða mæðra fyrir að hætta með barn á brjósti sé ónóg mjólkurframleiðsla á fyrsta mánuði. En janframt segja mæður að þær hefðu viljað hafa barnið lengur á brjósti. Þannig að ljóst er að mæður eru ekki að ná að uppfylla eigin væntingar til brjóstagjafar.

Aðrar rannsóknir benda til þess að koma verði á virkri mjólkurframleiðslu fyrstu 3 daganna svo tryggja megi næga framleiðslu hjá móður 8 vikum eftir barnsburð (Morton, 2009 & 2010). 

Því er miklvægt að allar mæðru læri að handmjólka sig fyrir útskrift af sjúkrahúsi.

Heimildir

Geddes

Moore, E. & Mary-Beth,. (2006). Prental and Postnatal Focus Groups With Primiparas: Breastfeeding Attitudes, Support, Barriers, Self-efficacy and Intention. Journal of Pediatric Health Cre, jan/feb, 35-45.

Morton, 2009

  

Morton, 2010

  
  
  

 

  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
 
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
 
  
  
  
  
  
  
  
  
  

  Grein 6-24. maí er The infant Feeding activvity and Nurition Trial (INFANT) an   early intervention to prevent childhood obesity; Cluster-randomised control   trial hér.

  

  

  

  

  

  

  
  
© 2009 Medus ehf.