Brjóstabólga

Besta meðferðin við brjóstabólgu er að móðir haldi áfram brjóstagjöf.

Eftirfarandi upptalning 1-10. eru taldar helstu orsakir brjóstabólgu.

 
1. Sárar, sprungnar geirvörtur og sársauki í geirvörtum

2. Stíflaðir mjólkurkirtlar

3. Álag og þreyta

4. Stálmi

5. Bakteríusýking Staphylococcusaureus

6. Of mikil mjólkurframleiðsla

7. Erfiðleikar við að leggja barn á brjóst

8. Bakteríusýking Steptococcusepidermis

9. Aðrar örverur

10. Gjafir of stuttar

Fram kemur í rannsóknargreiningu Kvist (2010) að í 9 rannsóknum á brjóstabólgu telja rannsakendur ástæðuna fyrir brjóstabólgu vera sárar geirvörtur.

Því er mjög mikilvægt að leiðrétta legu barns við brjóst og meðhöndla sárar geirvörtu samhliða.

Í nýlegum fyrirlestri Ruth Lawrens (maí 2010) á gold10 kom fram að brjóstabólga væri orðin mun algengari en áður hún taldi orsökina hugsanlega vera þá að brjóstabólga væri ofgreind. Ruth Lawrens er einn fremsti sérfæðingur á sviði brjóstagjafar í heiminum sagði einnig að besta meðferðin væri að halda brjóstagjöf áfram og að í of mörgum tilfellum bæri gripið til sýklalyfja gjafar. 

  

Kvist, L. J. (2010).  Toward a clarification of the concept of mastitis as used in epiprical studies of breast imflammation during latation. Jounal of human lactation, 26(1), 53-59.

  

  

  
  
  

 

  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
 
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
  
 
  
  
  
  
  
  
  
  
  

  Grein 6-24. maí er The infant Feeding activvity and Nurition Trial (INFANT) an   early intervention to prevent childhood obesity; Cluster-randomised control   trial hér.

  

  

  

  

  

  

  
  
© 2009 Medus ehf.

brjóstagjöf.is